- Rasshausinn vaknar ávallt seint og illa sofinn.
- Tímaskyn hans er lítið sem ekkert.
- Morgunverðurinn er ekki upp á marga fiska hjá rasshausnum sem og snyrtimennskan og enda ekki sjaldgjæft að hann syppi í sig eitt stykki malt og nokkrum súkkulaðirúsínum.
- Rasshausinn er ávallt seinn í sporum og gengur eins og Erpur eftir kröftuga fimm daga helgi.
- Rasshausinn er hreint út sagt ógeðslegur og lyktar eins og fimm ára andfýla.
- Hann hefur engan skilning á hreinlæti og veit ekki hvernig hlutirnir ganga fyrir sig.
- Hvað ertu að gera?
- Ég get ekki horft upp á þetta, þetta er... svona...
- Tískuvitund hans er til hábornar skammar og fer hann í föt sem hendi eru næst. Algjörlega stíllaus.
- Nú fer rasshausinn jafn subbulegur og venjulega til skóla og er eins og vanalega, seinn.
- Hei rasshaus! Hvert ertu að fara? Ég veit það ekki en ég veit eitt.
Hvernig á að gera sig til fyrir skóla.
- Hann vaknar alltaf að minnsta kosti klukkustund áður en hann fer í skólann og er alltaf ferskur sem íslenskt bergvatn á sólríkum sumardegi.
- Yee - Herramaður - EESSS!
- Morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins og því mikilvægt að skipuleggja sig vel.
- Trefjar eru hafðar í forgangi þegar velja á morgunkorn og verður undarenna oft fyrir valinu þegar á að auðvelda meltun og koma í veg fyrir harðlífi.
- Einnig má geta þess að hann skilur aldrei eftir ruslslóð.
- Hreinlæti spilar stóran þátt í samskiptum við kvenþjóðina, þess vegna er mikilvægt að sturta sig í gang fyrir hvern dag sem líður af þinni ævi.
- Athuga skal skrúbba vandlega á öllum svæðum sem loft á erfitt með að komast að.
- Úps, vandræðalegt!
- Tannburstaðu þig vel, engum finnst andfýla góð og fólk fer að forðast að vera í kringum þig.
- Næst skaltu spreyja þig upp, krema þig í gang og gela þig í drasl.
- Herramaðurinn klæðir sig ekki eftir veðri heldur eins og hann sé að fara á mikilvægan fund með Steve Jobs.