Psst...

Do you want to get language learning tips and resources every week or two? Join our mailing list to receive new ways to improve your language learning in your inbox!

Join the list

Icelandic Audio Request

adelie
170 Words / 1 Recordings / 0 Comments

Søren Aabye Kierkegaard (5. maí 1813 – 11. nóvember 1855) var danskur heimspekingur og guðfræðingur, sem er venjulega talinn faðir tilvistarspekinnar. Hann brúaði bilið milli hegelskrar heimspeki og þess sem varð síðar tilvistarspeki. Kierkegaard gagnrýndi heimspeki Hegels harðlega og það sem hann sá sem innantóm formlegheit dönsku kirkjunnar. Mörg verka hans fjalla um trúarleg stef, eins og eðli guðstrúar, kristna kirkju sem stofnun, kristilega siðfræði og guðfræði og geðshræringar og tilfinningar manns þegar maður stendur frammi fyrir tilvistarfræðilegum ákvörðunum. Af þessum sökum er heimspeki Kierkegaards stundum lýst sem kristilegri tilvistarspeki og tilvistarspekilegri sálarfræði. Vandasamt er að skilgreina og túlka verk Kierkegaards, þar sem hann samdi flest eldri verka sinna undir dulnefnum og notaði svo ólík dulnefni til að gera opinberlega athugasemdir við og gagnrýna önnur verk sín undir öðrum dulnefnum. Af þessum sökum er fremur erfitt að greina á milli raunverulegra skoðana og viðhorfa Kierkegaards og þeirra sem hann notar eingöngu til þess að rökstyðja sig sem skálduð persóna. Ludwig Wittgenstein sagði að Kierkegaard hafi verið „dýpsti hugsuður nítjándu aldar“.

Recordings

Comments

Overview

You can use our built-in RhinoRecorder to record from within your browser, or you may also use the form to upload an audio file for this Audio Request.

Don't have audio recording software? We recommend Audacity. It's free and easy to use.